Skilmálar



Skilmálar þessir gilda um leigu búnaðar Party.is

Leiguskilmálar: 

  1. Leigutími er minnst einn dagur og miðast upphaf leigu við dagsetningu afhendingar í leigusamningi nema um annað hafi sérstaklega verið samið. Síðasti dagur leigu telst skiladagur í leigusamningi.  Ef búnaði er ekki skilað innan umsamins tíma skal leigutaki greiða fulla dagsleigu fyrir hvern byrjaðan dag, auk alls kostnaðar sem Party.is kann að verða fyrir sé ekki unnt að uppfylla þegar gerða leigusamninga við aðra viðskiptavini vegna búnaðarins. 


  2. Leigutaki skal kappkosta að fara vel með hinn leigða búnað. Leigutaki ber ábyrgð á skemmdum sem kunna að verða á búnaði í hans umsjón sem og glatist búnaðurinn meðan hann er í umsjón hans.

    Ef því er ekki sinnt skal greiða þrifagjald – 3.000 – 5.000 kr – Fer eftir umfangi á vöru og þrifum.

  1. Leigutaki skal vera lögráða einstaklingur, félag eða stofnun. Sá sem skuldbindur félag eða stofnun ábyrgist að hafa til þess fullt umboð og ber að sýna fram á umboð sitt geri Party.is kröfu um það, jafnframt því sem hann tekur persónulega ábyrgð á leigusamningi. Hafi Party.is rökstuddan grun um að umboð þess er skuldbindur félag eða stofnun sé ekki gilt, áskilur Party.is sér rétt til að taka fyrirvaralaust, hvenær sem er á leigutímanum í sína vörslu hinn leigða búnað, án allrar bótaskyldu. 

  1. Afhending á vöru: Almennt skal sækja vörur á starfstöð Party.is, Gufunesvegi 4 en möguleiki er að panta uppsetningu og akstur sérstaklega og er það ávallt aukalegur kostnaður.

    Ef vara er sótt á mánudegi til fimmtudags er möguleiki að sækja vörur á milli 14:00 – 16:00 – Við óskum þó eftir því að     sett sé í athugasemd á pöntun klukkan hvað leigutaki óskar eftir að sækja vöruna.

    Ef vara er sótt á föstudegi þá er ætlaður afhendinartími frá 14:00 – 16:30.

    Ef vara er sótt á laugardegi skal sækja leigubúnað á frá 12:00 – 14:00

    Ef vara er sótt á sunnudegi skal sækja leigubúnað eftir samkomulagi.

 

  1. Almennt um skil á búnaði:

    Ef skiladagur er mánudagur til fimmtudags þá skal skila búnaði á milli 13:00 – 16:30

    Ef skiladagur er föstudagur eða laugardagur skal skila leigubúnaði á milli 10:00 og 11:30 – Annað er samkvæmt samkomulagi.

    Ef skiladagur er á sunnudegi skal hafa samband við party.is.

 

  1. Heimsending og uppsetningar þjónusta: Party.is býður upp á heimsendingu og uppsetningu og kostar það í öllum tilfellum aukalega. Hægt er að velja heimsendingu í vefverslun og sést þar kostnaður miðað við umfang leigupöntunar.


  2. Mál sem kunna að rísa vegna þessara skilmála skal höfða fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.